Hvernig þetta byrjaði
Velkomin í ANGAN – og takk fyrir að líta við í journalinu okkar. Ég heiti Iris Laxdal og er stofnandi ANGAN Skincare, náttúrulegs og meðvitaðs húðvörumerkis sem sækir innblástur í þau ritúöl og þá náttúru sem Íslendingar hafa treyst á um aldir til að hlúa að húðinni.
Ég byrjaði ekki í húðumhirðu. Ég starfaði sem arkitekt þegar brjósklos varð til þess að ég fór í ótímabundið veikindaleyfi. Nánast á einni nóttu var ég komin í líkama með takmarkanir sem ég hafði aldrei áður þurft að hugsa um. Ég þurfti að finna leið til að hlúa bæði að líkamanum og huganum á meðan ég náði mér, og smám saman, án þess að ég hefði í raun ætlað mér það, urðu þessi litlu skref að upphafi ANGAN árið 2016.
Frá eldhúsinu í vinnustofuna
ANGAN varð til úr langri og þolinmóðri leit þar sem ég sameinaði það sem ég hafði lært í arkitektúr við nýja þekkingu mína á plöntumiðaðri húðumhirðu, á sama tíma og ég var að takast á við mína eigin viðkvæmu og viðbragðsgjörnu húð.
Það sem hófst í heimiliseldhúsi er í dag handunnið í litlum, meðvituðum lotum í vinnustofunni okkar í Kópavogi, rétt fyrir utan Reykjavík. Þar notum við eins hrein og sjálfbær hráefni og við getum fundið.
Þessi leit leiddi að lokum til Icelandic Botanical Complex, okkar eigin blöndu af villtum íslenskum plöntum eins og brenninetlu, fífli, rauðsmára, vallhumli og blóðbergi. Blandan er í dag hluti af mörgum af vörunum okkar.
Hún er meðal annars kjarninn í Arctic Youth Face Oil, vörunni sem á margan hátt varð til beint úr þessari vegferð. Olían sameinar tíu jurtaolíur með hafþyrni, jojoba og avókadó og er sérstaklega ætluð þurri, viðkvæmri húð og húð sem er gjörn á roða. Í hverri flösku síðan þá hefur falist örlítið af þessari upprunalegu leit að ró og jafnvægi.
Loforð ANGAN
- Vörurnar eru framleiddar í litlum lotum til að tryggja ferskleika, en ekki fjöldaframleiddar.
- Við notum hráefni sem eru ýmist villt eða ræktuð á ábyrgan hátt, plöntumiðuð, cruelty free og vegan.
- Vörurnar koma í okkar einkennandi grænu flöskum og ytri umbúðir eru FCR-vottaðar.
- Allt er handunnið á Íslandi, frá villtri íslenskri náttúru og alla leið að húðinni, einum dropa í einu.
Af hverju þetta journal?
Mig langaði að skapa stað þar sem ég gæti deilt meira en kemst fyrir á vörumerkingu eða Instagram-síðu: hugmyndunum, litlu ritúölunum og brotunum úr norrænu lífi sem móta ANGAN innan frá.
Það er alltaf meira að segja en kemst fyrir á flösku, og mér fannst þetta rétti staðurinn til að segja þá sögu.
Hér mun ég deila hugleiðingum um þau náttúrulegu ritúöl sem Íslendingar hafa stundað kynslóðum saman, allt frá því að baða sig í steinefnaríku vatni yfir í að hægja á sér þegar birtan hverfur stóran hluta vetrarins, og hvernig þessar venjur hafa ratað inn í vörurnar okkar.
Ég mun líka gefa innsýn í það sem gerist í vinnustofunni sjálfri: litlu ákvarðanirnar á bak við formúlu, ilm eða nýja viðbót við vörulínuna. Þannig verður sagan á bak við ANGAN vonandi aðeins minna leyndardómsfull.
Von mín er sú að það sem þú finnur hér verði mild áminning um að hlúa að sjálfri þér, næra húðina og andann og muna að setja sjálfa þig aftur á þinn eigin forgangslista.
Það er í raun það sem ANGAN hefur alltaf snúist um – fyrir mig, ekki síður en fyrir alla sem nota vörurnar okkar.
Mild áminning um að hlúa að sjálfri þér, næra húð og sál og muna að setja sjálfa þig í forgang.
Kíktu endilega við af og til. Og takk fyrir að vera hluti af ANGAN ferðalaginu.
Xx, Iris
Leave a comment