Frábær samvera og heilsunæring Mæli
"Frábær samvera og heilsunæring Mæli með ❤️"
Makalaust dekur · 22% afsláttur dregst sjálfkrafa frá í körfunni · til miðnættis á fimmtudag
Gjafakassar · Allt að 34% afsláttur með auka 22% í körfunni
REYKJAVÍK, ÍSLAND
Við bjóðum upp á Dekurgufu – nærandi upplifun þar sem náttúruleg vellíðan, mild jurtagufa og líkamsdekur mætast.
Í ilmandi jurtagufu færðu tækifæri til að hægja á, slaka á og tengjast líkama þínum og náttúrunni. Með samspili gufu, ilmmeðferðar, ljúfra tóna og núvitundar fær líkaminn að mýkjast og hugurinn að róast.
Í athöfninni notum við húðvörur frá ANGAN, ilmkjarnaolíur og íslenskar jurtir sem næra húðina og vekja skynfærin. Markmiðið er að skapa róandi og endurnærandi upplifun sem skilur eftir sig jafnvægi og vellíðan.
18. nóvember kl. 17:00
Komdu og njóttu nærandi upplifunar þar sem mild jurtagufa, ilmur, dekur og núvitund skapa djúpa slökun fyrir líkama og huga.
Hvenær: 18. nóvember kl. 17:00
Hvar: Fúsk Sauna
Við notum húðvörur frá ANGAN, ilmkjarnaolíur og íslenskar jurtir til að skapa hlýja og endurnærandi stund.
Gjafapoki fylgir öllum gestum heim.
Íris Laxdal, stofnandi ANGAN, leiðir húðvörudekur og tengingu við jurtir og ilm.
Olga Hörn, gufumeistari, sér um hitann og flæðið í gufunni.
Sundföt (mælt er með að mæta í sundfötum undir fötunum).
Handklæði til að þurrka sér.
Vatnsbrúsa.
Sundskó ef á að fara í sjóinn.
Þægileg föt eða slopp til að fara í eftir gufuna.
Mæting: Fúsk Sauna
Takmarkað sætaframboð – tryggðu þér pláss í tíma!
Overall rating: 5.0 / 5 from 4 reviews.
Review topics: [].
"Frábær samvera og heilsunæring Mæli með ❤️"
— Raggnheiður G. (5/5)
"Besta dekurgusan í bænum!"
— Rakel M. (5/5)
"Mjög nice og fullkominn hiti"
— Linda Á. (5/5)
"Frábært, langar aftur !"
— Vilborg J. (5/5)
Please select your shipping country.
Buy from the country of your choice. Remember that we can only ship your order to addresses located in the chosen country.